Hundaspjallið umræðuhópur Hundaspjallið
Óháð hundaspjall, þar sem fullorðna fólkið spjallar.
 
 Algengar spurningar (FAQ)Algengar spurningar (FAQ)   LeitaLeita   Listi yfir notendurListi yfir notendur   NotendahóparNotendahópar   NýskráningNýskráning 
 Þín uppsetningÞín uppsetning   Skráðu þig inn til að athuga með einkapóstSkráðu þig inn til að athuga með einkapóst   InnskráningInnskráning 

Old English Sheepdog

 
Senda inn nýjan spjallþráð   Senda svar á spjallþráð    Hundaspjallið umræðuhópur -> Tegundakynning
Sjá síðustu spjallþræði :: Sjá næstu spjallþræði  
Höfundur Skilaboð
Marín_oes



Skráður þann: 12 Apr 2010
Innlegg: 3

InnleggInnlegg: Lau Jún 12, 2010 3:33 pm    Efni innleggs: Old English Sheepdog Svara með tilvísun



Sýningarhundur



Fluffy Smile



Feldhirða er mikil á Old english sheepdog og flestir Oldie eigendur klippa þá stutta sem minkar feldhirðuna mikið.






Old english sheepdog er þróttmikill, og fjörugur hundur. Hann er hvorki hræddur né árásagjarn. Þetta er ástúðleg tegund, róleg og jafnlynd. Stundum kallaður “barnfóstru hundurinn,” hann gætir alltaf að börnunum og er mikil barnagæla. Þó svo hann hafi hjarta varðhunds og verndara, er hann ekki árásagjarn og bítur ekki. Hann góður félagi, en byrja verður þjálfunina á Old english sheepdog snemma. Hann verður mjög háður eiganda sínum og vill alltaf vera í kringum hann.

Uppruni
Breskur að uppruna líkt og nafnið gefur til að kynna. Uppruna Old English sheepdog má líklega rekja til Evrópska fjárhunda eins og t.d. Briard. Ræktun tegundarinnar byrjaði árið 1880. Hann var upprunalega notaður sem fjárhundur.

Umhirða
Bursta verður feldinn vikulega annars fer hann í flóka og það gæti leitt af sér húðvandamál. Ef hundurinn á ekki að vera sýndur er feldurinn yfirleitt klipptur svo feldhirða verður þar af leiðandi minni.

Hreyfing
Old english sheepdog þarf nokkuð mikla hreyfingu, og þarf helst að hlaupa daglega. Hann þolir illa heita veðráttu.

Leyfilegir litir
Öll litbrigði af gráum eða bláum. Líkaminn og afturhluti eru í samfelldum lit, með eða án lítilla flekkja á fótum (sokkum), höfði, hálsi, leggjum, neðri hluti líkamans verður að vera hvítur. Brúnir flekkir eru galli.

Hæð á herðakamb
Rakkar í minnsta lagi 61 sm.
Tíkur í minnsta lagi 56 sm.

Þyngd
25 - 30 kg.

Staðreyndir

Upprunaland: Bretland
Upprunatími: 1800
Fyrstu not: Fjárhundur
Í dag: Félagi
Lífsskeið: 12-13 ár
Önnur nöfn: Gamall enskur fjárhundur (ísl), Bobtail.



Milla Aska

Þarna er tíkin mín hægra meginn, og systir hennar vinstra megin Smile - 7 mánaða Smile









[/u]


Aska mín, 8 vikna á nýju heimili Smile





Orðin syrka 3 mán Smile alger dúlla !





5 mánaða í fjörunni Very Happy




7 mánaða í myndatöku Smile

Er ekki með nýlega mynd af henni en hún er orðin 9 mánaða, ekkert smá sææt og góð!

Takk, takk.
_________________
Marín,
Og Old english sheepdog, Leitis Aska Smile
Til baka efst á síðu
Sjá uppsetningu notanda Senda einkapóst
Sýna innlegg frá síðasta:   
Senda inn nýjan spjallþráð   Senda svar á spjallþráð    Hundaspjallið umræðuhópur -> Tegundakynning Allir tímar eru GMT
Blaðsíða 1 af 1

 
Fara til:  
Þú getur ekki sent inn nýja spjallþræði á þessar umræður
Þú getur ekki svarað spjallþráðum á þessum umræðum
Þú getur ekki breytt innleggi þínu á þessum umræðum
Þú getur ekki eytt innleggjum þínum á þessum umræðum
Þú getur ekki tekið þátt í kosningum á þessum umræðum


Powered by phpBB © 2001, 2005 phpBB Group