Hundaspjallið umræðuhópur Hundaspjallið
Óháð hundaspjall, þar sem fullorðna fólkið spjallar.
 
 Algengar spurningar (FAQ)Algengar spurningar (FAQ)   LeitaLeita   Listi yfir notendurListi yfir notendur   NotendahóparNotendahópar   NýskráningNýskráning 
 Þín uppsetningÞín uppsetning   Skráðu þig inn til að athuga með einkapóstSkráðu þig inn til að athuga með einkapóst   InnskráningInnskráning 

Hundahald í fjölbýlishúsum í Reykjavík.

 
Senda inn nýjan spjallþráð   Senda svar á spjallþráð    Hundaspjallið umræðuhópur -> Hundaréttindi
Sjá síðustu spjallþræði :: Sjá næstu spjallþræði  
Höfundur Skilaboð
~*Vigdís*~



Skráður þann: 30 Jan 2007
Innlegg: 119
Staðsetning: Grafarhollt - Rvk Aldur: 30ára

InnleggInnlegg: Lau Júl 10, 2010 4:06 am    Efni innleggs: Hundahald í fjölbýlishúsum í Reykjavík. Svara með tilvísun

Sælir hundaeigendur
Síðan árið 2004 hefur túlkun Umhverfis- og samgöngusviðs Reykavíkurborgar (hér eftir nefnt USR)
á hvað sé sérinnangur og hvar þurfi leyfi annara íbúa verið túlkað að flestum finnst
töluvert öðruvísi en fjöleignarhúsalögin voru hugsuð. (tiliti til Asma og ofnæmi).

Minnistæð er greinin eftir Sigurður Helgi Guðjónsson hrl., formaður Húseigendafélagsins
sem er hægt að finna hér á spjallinu Með kjafti og klóm í fjölbýli þessi grein var skrifuð 2007

Hægt er að lesa umræður um hana hér á spjallinu sem uppi voru á sínum tíma
hér

Árið 2003 hinsvegar var sérinngangur einfaldlega sérinngangur, á þeim tíma var
ég og kærasti minn að leita að okkar fyrstu eign og
leituðumst við því eftir upplýsingum hjá USR varðandi íbúð sem við höfðum áhuga á , vildum við vita hvort við gætum ekki pottþétt
verið með hundinn okkar þar. Tvívegis hafði ég samband, einu sinni með því að fara uppeftir og svo
hringdi ég ,,just in case" daginn sem við skrifuðum undir kauptilboðið, umrædd íbúð var enn í byggingu.
Við fáum íbúðina fínu svo afhennda Apríl 2004.
Þegar ég mæti á skrifstofuna til að skrá hvuttann minn er mér hinsvegar
tjáð að ég þurfi samþykki allra hinna íbúanna sem eiga sameiginlegt rými
sem eru nú nota bene bara 62 íbúðir takk fyrir.
Eins og flestir vita kaupir maður ekki og selur íbúðir á hverjum degi,
einnig var á þeim tíma ekki í boði 100% lán, einungis 70% frá íbúðalánasjóði en fyrir
fyrstu íbúðina gat maður sótt um auka lán og fengið 90%.
Við erum ekki hálaunafólk og gátum því ekki selt.

Það sem breyttist var að ,,einhver" árið 2004 kærði ákvörðun USR til úrskurðunarnefndar Reykjavíkurborgar fyrir að hafa gefið
hundaleyfi í slíka íbúð. Þar með var komið fordæmi og óvissa, USR var nú í
vanda og gat því ekki gefið leyfi áfram í slíkar íbúðir.
Ég fór á stúfana og ætlaði að safna leyfum, ég byrja fjærst frá minni íbúð, í öðrum stigagangi,
og á þriðju bjöllu fæ ég neitun, eldri kona á fjórðu hæð, við notum ekki sömu
bílastæði, ekki sömu ruslageymslur, ekki sömu hjólageymslur en við eigum sameiginlega lóð.
Þar með var sá draumur búinn.

Ég læt því lítið á mér bera en umsóknin mín lá alltaf hjá USR,
ég heyri lítilega frá þeim 2005, en almennur skilningur í blokkinni á húsfundum
hafði verið að samkvæmt fjöleignahúsalögum má ég hafa hund, svo ég var ekkert
að ,,rugga bátnum". 2007 eru svo einhverrir smáhundar á annari hæð sem þurfa
að fara í gegnum stigagang, en ganga ekki beint út á bílastæði eins og ég sem
kvartað er undan og í leiðinni fæ ég ,,bögg" frá USR, vil taka fram að þá verandi
hundafangari (Jón) var ávalt afar kurteis við mig og þótti þetta leiðinlegt að geta
ekki gefið mér leyfi, hann vissi líka að það var ekkert ,,vesen" á tíkinni minni.
Ekkert gerist. Ég held áfram að vera með óskráðann hund en almennt halda
hinir í fjölbýlishúsinu að hann sé skráður, ég laug aldrei, heyrði þetta alltaf frá 3ja aðila
Ég hafði einungsi fengið munnlegar neitanir um hundaleyfi, aldrei neitt formlegt,
en ég hélt áfram að ,,fela" mig, ég hefði að sjálfsögðu átt að vinna frekar í málinu og
ýta á eftir formlegri ákvörðun frá borginni, en ég gerði það ekki.

2009 tekur við í fjölbýlishúsinu mínu ,,eignaumsjón" svaka fínt fyrirtæki sem
hugsar um íbúana sína, þeir vita líka aðeins betur en hústjórn hvernig svona lagað
er háttað. Á sama tíma kemur upp óánægja með að ég þreif ekki einkagarðinn minn oft á dag,
tek alltaf upp eftir tíkina í göngutúrum jafn óðum en hafði ekki gert það í garðinum mínum,
þetta er einkalóð sem ég á á pappírum. Einnig ef það var mikill leikur í börnum fyrir utan garðinn minn
gelti tíkin, ég tók hana þá auðvitað inn enda alltaf hjá henni og þar með var málið búið.

Svo einn góðann morgun fæ ég heimsókn frá nýja hundafangaranum þar sem kvartað
var yfir hundahaldi mínu, þá var ég frekar ,,óheppin" þar sem ég var að passa 3 aðra hunda,
einnig var kvartað yfir músum í geymslu, að ég ætti frosk? og kisu
ég sýndi þeim geymsluna mína og þar voru auðvitað ekki mýs. Ég á kött, innikött,
en að banna mér inniköttinn er skerðing á umráða- og afnotarétti eiganda séreignar,
enda var ekkert gert nema að nefna hann.
Ég á líka frosk, hann kom í fréttablaðinu í sama mánuði og þessi heimsókn var, þar sagðist ég líka rækta mýs, sem
er satt en ég geri það ekki heima hjá mér, ég vinn í gæludýrabúð, hef gert það í átta ár.

Mér var gefinn mánuður til að losa mig við hundinn og ekkert múður.
Þetta var mjög erfiður tími þar sem tíkin var fárveik að berjast við brisbólgu,
við íhuguðum að kveðja hana vegna veikindanna en vildum gera það heima,
en þar mátti tíkin ekki vera, hún fluttist því til foreldra minna í bæjarfélag
yfir 400km í burtu. Við vorum ekki sátt, ein kvörtun, hundafangarinn fann einn kúk
í garðinum mínum en sagðist hafa komið vikunni á undan en ekki bankað uppá þá,
þar sem það var enginn kúkur í garðinum... Í Húsreglunum okkar stendur að ekki megi
hafa háreisti frá miðnætti til sjö á morgnanna, tíkin sefur á milli okkar svo ég
er viss um að við værum vör við það á þeim tíma ef hún gelti,
en kvartað var undan því, að hún gelti á næturnar,
ég skil ekki að nágrannar heyri hana gelta á næturnar þegar við heyrum það ekki með tíkina á milli okkar.
Hinsvegar er auðvitað partý læti, barnsgrátur og tilheyrandi sem fylgir fjölbýlishúsum,
allt í lagi, eitthvað sem ég hef ekki á móti en slíkt ónæði kemur ekki frá okkur,
við eigum ekki hljómflutningstæki, sjónvörp né börn. Geltið yfir daginn var ,,okkar" hávaði.
Við skulum hafa það á hreinu að tíkinn gelti ekki lon og don, hún missti sig ef mikill
æsingur var í börnum og var stoppuð af, á daginn auðvitað.
Því erum við ekki saklaus, tíkin kann að gelta, en við töldum okkur vera komin
með hemil á henni og að við værum ekki að ónáða íbúa enda þeir sem bjuggu
næst okkur vildu meina ekki, ég bað fólk ítrekað að láta mig vita ef eitthvað
færi í taugarnar á þeim og ég myndir reyna að kippa því í liðinn.
Aðeins einn hafði samband á fimm árum, við leystum málið á auðveldann máta.

Við tölum því við lögfræðing, okkur er tjáð eftir að lögfræðingurinn fór yfir
Úrskurði frá Úrskurðunarnefnd Reykjavíkurborgar að það væri undantekningarlaust
dæmt hundaeigendum í óhag. Frábært, hinsvegar hefði enginn farið með svona mál
fyrir héraðsdómi og reynt á lögin, sem standa ofar reglugerðum borgarinnar.

Svo við fáum lögfræðinginn til að kæra synjunina fyrir hundaleyfinu til þessarar nefndar
og bíðum svo róleg. Þetta var 30. júlí 2009.
Stefnan var tekinn að fara með úrskurðinn fyrir héraðsdóm.
Mikil töf var á því að nefndin gæti komið saman, en þetta var mál nr 7 sem hún
tók fyrir það ár. Nú tæpu ári seinna er loksins kominn úrskurður frá nefndinni,
sem við ætluðum að nota til að kæra til Héraðsdóms.

Hér má sjá úrskurðinn:
www.rettarheimild.is






.



.

Ég legg áherslu á ætluðum Mr. Green

Reikna má með að þessi úrskurður verði fordæmagefandi í framtíðinni,
og hjálpi USR að skera á milli hvað sé sérinngangur og hvað ekki,
starfsfólkið hjá USR er upp til hópa indælis fólk og hefur komið vel fram
við mig síðast liðin 7 ár, það er í raun aðeins ein undantekning sem óþarfi
er að fara út í, endilega sýnið þeim kurteisi, maður fær hana nefnilega til baka
og þau eru að vinna vinnuna sína með þann ramma sem þau hafa, nú hafa
þau örlítið víðari ramma og ég yrði ekki hissa þó að það séu einhverjir þarna sem
hafa fagnað þessum úrskurði alveg eins og ég Smile

Þeir sem nenna ekki að lesa úrskurðin skulu athuga að þetta er
einungis fordæmagefandi fyrir íbúðir á jarðhæð með sérinngang
beint út á bílastæði/götu. Um leið og þú þarft að fara upp einhverskonar
stigagang, þó að hann sé úti þá eru eldri úrskurðir fordæmi og þeir eru
ekki hundaeigendum í hag.

Semsagt ef þú gengur beint út á bílastæði eins og ég
þá ættirðu að geta fengið hundaleyfi í Reykjavíkurborg hér eftir
án samþykkis hinna íbúanna Very Happy Til hamingju Reykvískir hundaeigendur Cool
ég er a.m.k. að springa úr hamingju því 6ára fargi hefur nú verið af mér létt!
Êg er búin að vera með annan fótin tilbúin að flytja síðan við fengum afhennt,
við kölluðum alltaf fjölbýlið okkar á milli ,,fangelsið", nú er þetta orðið ,,heima".

Ég vil hinsvegar ekki að öðrum íbúum líði illa í sambýli við mig og Njálu
svo við munum ekki nota einkalóðina okkar fyrir hana, enginn kúkur og
ekkert gelt úti á lóðinni okkar, ég hef gefið út viljayfirlýsingu þess efnis með
örmerkisnúmerinu Njálu og þar sem þessi þáttur virtist vera það sem angraði
viðkomandi þá vona ég að sambýlingunum mínum líði betur þegar Njála notar ekki einkalóðina mína,
og eftil vill bankar þeir uppá næst ef eitthvað truflar þá, þau hljóta að fatta by now
að ég er ágætis manneskja sem er mjög sveigjanleg í viðræðum um dýrin mín Smile


Með bestu kveðju
Vigdís Rut Andersen
og tíkin Njála Rós sem er nokkurn vegin batnað og ætlar að fá að
klára lífið sitt í rólegheitum heima hjá sér.

_________________
Spjall um framandi gæludýr
Til baka efst á síðu
Sjá uppsetningu notanda Senda einkapóst Heimsækja heimasíðu sendanda
byrjandi



Skráður þann: 09 Des 2009
Innlegg: 187

InnleggInnlegg: Lau Júl 10, 2010 11:05 am    Efni innleggs: Svara með tilvísun

þetta eru ánægjulegar fréttir - eiginlega þyrfti að líma þennan þráð, svo að þeir sem eru í þessum hugleiðingum (fá sér hund í í R.vík í íbúð í fjölbýli með sérinngangi) þurfi ekki að leita að honum.

Ég óska ykkur Njálu alls hins besta frá okkur Kol (stubbinum mínum)
_________________
einu sinni er allt fyrst
Til baka efst á síðu
Sjá uppsetningu notanda Senda einkapóst
Stubbyr
Ritstjóri


Skráður þann: 29 Jan 2007
Innlegg: 6851
Staðsetning: Reykjavík

InnleggInnlegg: Lau Júl 10, 2010 11:49 am    Efni innleggs: Re: Hundahald í fjölbýlishúsum í Reykjavík. Svara með tilvísun

~*Vigdís*~ skrifaði:


Semsagt ef þú gengur beint út á bílastæði eins og ég
þá ættirðu að geta fengið hundaleyfi í Reykjavíkurborg hér eftir
án samþykkis hinna íbúanna Very Happy Til hamingju Reykvískir hundaeigendur Cool
ég er a.m.k. að springa úr hamingju því 6ára fargi hefur nú verið af mér létt!


Elskan mín, þetta hefur alltaf verið svona (búin að vita þetta lengi) - af hverju í ósköpunum talaðir þú ekki við mig ???????


En til hamingju Njála systir og Vigdís Very Happy
_________________
Stubbyr
Til baka efst á síðu
Sjá uppsetningu notanda Senda einkapóst
~*Vigdís*~



Skráður þann: 30 Jan 2007
Innlegg: 119
Staðsetning: Grafarhollt - Rvk Aldur: 30ára

InnleggInnlegg: Lau Júl 10, 2010 2:56 pm    Efni innleggs: Svara með tilvísun

Ég þakka hamingju óskirnar Very Happy

Langar að vitna í einn part úr úrskurðinum

Tilvitnun:
Gögn málsins bera það með sér að nokkuð barst af kvörtunum frá sameigendum kæranda vegna hundsins, sbr. fylgiskjöl með greinargerð kærða. Kvartanir sameigenda varða óþrifnað og ónæði af hundinum. Af gögnum málsins má einnig sjá að kærandi hefur komið til móts við kvartanir og t.a.m. hætt að setja hundinn út á séreignarlóð sína til að koma í veg fyrir að úrgangur og gelt frá hundinum valdi óþrifum eða ónæði. Framangreint er í samræmi við skyldur gæludýraeigenda, sbr. 13. gr. hundasamþykktar Reykjavíkurborgar og 56. gr. reglugerðar um hollustuhætti nr. 941/2002, en þar segir að gæludýraeigandi skuli gæta þess að dýr valdi ekki hávaða, ónæði, óhollustu eða óþrifnaði. Gera verður kröfu þess efnis að kvartanir sameigenda um óþægindi og óþrifnað af dýri séu studdar haldbærum gögnum og að óþrifnaður og óþægindi séu ítrekuð og umfram það sem venjulegt og eðlilegt er, sbr. 3. mgr. 6. gr. hundasamþykktar Reykjavíkurborgar. Ekki hafa verið lögð fram gögn í málinu sem fullnægja þeim áskilnaði.

Þetta er uppáhaldsparturinn minn í úrskurðinum, fyrir utan auðvitað neðstu línurnar Razz



Stubbyr skrifaði:

Elskan mín, þetta hefur alltaf verið svona (búin að vita þetta lengi) - af hverju í ósköpunum talaðir þú ekki við mig ???????



Ha hvernig þá?, þetta getur nú ekki alltaf hafa verið svona,
annars hefði ég nú fengið hundaleyfi strax ekki satt Smile
Alveg frá 2004-2008 eru engar kvartanir á tíkina ekkert vesen,
ef að framkvæmdin var í lagi, þá væri ég komin með hundaleyfi Smile
Það var sama hvaða lögfræðinga, lög, reglurgerðir eða greinar ég
vitnaði í, ég fékk ekki hundaleyfi og í maí 2009 fékk ég afar dónalegann
mann í heimsókn sem sagð að ég fengi aldrei hundaleyfi í svona íbúð.

Hundasamþykktin og lögin segja skýrt að maður á að geta fengið leyfi á svona íbúð
en framkvæmdin hefur ekki verið samkvæm því í Reykjavíkurborg, þess vegna
hefur mér og HAUG af öðru fólki verið synjað um hundaleyfi.

Þar sem ég hef unnið í Gæludýrabúð allan þennan tíma þá
fæ ég ,,inn á borð" til mín fólk sem hefur lent ítrekað í því að
fá munnlega synjun. Og ég fékk einmitt ekki hundaleyfi í hendurnar
fyrr en ég var búin að senda hæstaréttalögmann til þess að kæra þetta formlega,
ég skal segja ykkur að það var nú ekki ódýrt Embarassed

Anyhow, ég er búin að lesa ,,hundaréttindis" umræðuna bak og fyrir síðastliðin ár,
aftur og aftur, því þetta hefur legið eins og mara á sálinni hjá mér og t.d. þetta:


Stubbyr skrifaði:
Hér í Reykjavík er það svo að gert er upp á milli "eigenda", sá sem á íbúð, segjum í permaform húsi, þar sem gengið er beint af bílastæði inn í íbúð vs. sá sem á íbúð sem liggur að ruslatunnugeymslu eru meðhöndlaðir á sitthvorn mátann. Sá síðari þarf leyfi allra þó hann sé í sama húsi og hinn. Þetta er hin þrengri túlkun Reykjavíkurborgar og minni svo á þetta skemmtilega dæmi hér sem sýnir vinnulagið.

Í úrskurðinum mínum kemur skýrt fram að ruslageymslur hafa ekkert með
málið að gera lengur Smile

En þeir sem eru á efri hæðinni í þessum Permaform húsum
þurfa líklega leyfi hjá hinum sem notar sama stiga

_________________
Spjall um framandi gæludýr
Til baka efst á síðu
Sjá uppsetningu notanda Senda einkapóst Heimsækja heimasíðu sendanda
Stubbyr
Ritstjóri


Skráður þann: 29 Jan 2007
Innlegg: 6851
Staðsetning: Reykjavík

InnleggInnlegg: Sun Júl 11, 2010 12:27 am    Efni innleggs: Svara með tilvísun

~*Vigdís*~ skrifaði:

Anyhow, ég er búin að lesa ,,hundaréttindis" umræðuna bak og fyrir síðastliðin ár,
aftur og aftur, því þetta hefur legið eins og mara á sálinni hjá mér og t.d. þetta:


Stubbyr skrifaði:
Hér í Reykjavík er það svo að gert er upp á milli "eigenda", sá sem á íbúð, segjum í permaform húsi, þar sem gengið er beint af bílastæði inn í íbúð vs. sá sem á íbúð sem liggur að ruslatunnugeymslu eru meðhöndlaðir á sitthvorn mátann. Sá síðari þarf leyfi allra þó hann sé í sama húsi og hinn. Þetta er hin þrengri túlkun Reykjavíkurborgar og minni svo á þetta skemmtilega dæmi hér sem sýnir vinnulagið.

Í úrskurðinum mínum kemur skýrt fram að ruslageymslur hafa ekkert með
málið að gera lengur Smile


Leiðrétting, í þínu tilfelli hafa ruslageymslur ekkert með málið að gera en borgin hengir sig svo sannarlega á slíka hluti (bara til að finna eitthvað). Tek það fram ég á eftir að leggjast yfir dóminn en þetta er ekki eini dómurinn sem hefur "hnekkt áliti" hinna ýmsu starfsmanna Reykjavíkurborgar (þeir vilja bara meina að það sé ekki fordæmisgefandi Laughing ). Hitt er annað að ég skil ekki að það hafi þurft að draga þá á eyrunum í gegnum dómsmál til að fá leyfi til að halda hund - en verði þeim að góðu, fordæmið er komið Wink - vonandi verða þau fleiri en ég verð að viðurkenna að ég sakna aðkomu HRFÍ að svona máli.

~*Vigdís*~ skrifaði:
En þeir sem eru á efri hæðinni í þessum Permaform húsum
þurfa líklega leyfi hjá hinum sem notar sama stiga


Ójú, ætli það ekki Wink Laughing
_________________
Stubbyr
Til baka efst á síðu
Sjá uppsetningu notanda Senda einkapóst
~*Vigdís*~



Skráður þann: 30 Jan 2007
Innlegg: 119
Staðsetning: Grafarhollt - Rvk Aldur: 30ára

InnleggInnlegg: Sun Júl 11, 2010 3:37 pm    Efni innleggs: Svara með tilvísun

Stubbyr skrifaði:
Leiðrétting, í þínu tilfelli hafa ruslageymslur ekkert með málið að gera en borgin hengir sig svo sannarlega á slíka hluti (bara til að finna eitthvað). Tek það fram ég á eftir að leggjast yfir dóminn en þetta er ekki eini dómurinn sem hefur "hnekkt áliti" hinna ýmsu starfsmanna Reykjavíkurborgar (þeir vilja bara meina að það sé ekki fordæmisgefandi Laughing ).




í alvöru, lögfræðingurinn minn fann ekkert :/
lang flestir dómanir voru þannig að fólkið þurfti að labba
smá í gegnum sameign til að komast heim til sín, (húsrými, teppalagt gólf og læti)
hinir voru alltaf steyptir stigagangar með þaki, en alltaf upp tröppur
svo þess vegna hélt hún að ég ætti ,,von" hún fann engann á jarðhæð
beint út á götu/bílastæði. En maður er alveg farinn að lifa og hrærast í þessu Laughing
mátt endilega senda mér linka á þessa dóma í einkapósti, pretty plís.



Stubbyr skrifaði:
Hitt er annað að ég skil ekki að það hafi þurft að draga þá á eyrunum í gegnum dómsmál til að fá leyfi til að halda hund - en verði þeim að góðu, fordæmið er komið Wink - vonandi verða þau fleiri en ég verð að viðurkenna að ég sakna aðkomu HRFÍ að svona máli.

Já, og mismunandi starfsmenn allan þennan tíma sem neituðu,
flestir voru alveg miður sín yfir þessu, og ég var ítrekað kvött til að
kæra ákvörðunina, hafði samt enga ,,ákvörðun" fyrr en í fyrra, en ég sóttist
heldur ekkert sértaklega eftir henni, var öll í því að rugga bátnum sem minnst...
En þessi eini einstaklingur sem ég nefndi, ég held hreinlega að annað hvort hundar
eða hundafólk hljóti að hafa misnotað hann í barnæsku eða eitthvað í þeim dúr Embarassed
hálf vorkenni manneskjunni að vera svona reið.

Svo er líka alltaf skemmtilegt sjónarmið, vá ég eyddi fullt af pening í lögfræði
vesen til að fá að borga borginni pening Rolling Eyes Meina ég var samt með
hundinn í 5 ár, á meðann hann fór ekki í taugarnar á neinum...

Já ég hefði haldið að þetta sé okkurat eitthvað sem hrfí mætti beita sér fyrir.


_________________
Spjall um framandi gæludýr
Til baka efst á síðu
Sjá uppsetningu notanda Senda einkapóst Heimsækja heimasíðu sendanda
MaggaN



Skráður þann: 06 Feb 2007
Innlegg: 864
Staðsetning: Akureyri

InnleggInnlegg: Sun Júl 11, 2010 6:30 pm    Efni innleggs: Svara með tilvísun

Flott hjá þér Vigdís, það eiga margir aftir að geta nýtt sér þetta sem fordæmi. Lítið skref í rétta átt Smile Gott að heyra að Njála sé betri.
_________________
Dogs are not our whole life but they make our lives whole.. -R. Caras
Til baka efst á síðu
Sjá uppsetningu notanda Senda einkapóst
evab



Skráður þann: 09 Jan 2008
Innlegg: 189

InnleggInnlegg: Mán Júl 12, 2010 8:55 am    Efni innleggs: Svara með tilvísun

til hamingju Vigdís og Njála Smile


mér hefur alltaf fundist að ísland sé svo laaaaaaaaaangt á eftir varðandi hundahald... og bara dýrahald yfir höfuð
t.d. því eru ekki ein og ein sérblokk þar sem dýrahald er leyft.. í allri blokkinni... þar getur dýrafólk bara búið. þeir sem vilja ekki dýr fá sér ekki í íbúð í þannig blokk. það yrði alveg pottþétt að þessar íbúðir munu rjúka út eins og heitar lummur... og við dýrafólkið þurfum ekki að lenda í veseni að fara með smásjá yfir reykavík að finna íbúð þar sem dýr eru leyf að kosta ekki hvítuna úr augunum.
_________________
Kolskeggs Hugljúfi Kasper, Dverg Schnauzer:)
Pepé Le Pew Franskur Bolabítur Smile
Kolgríma Da Vinci Hólm Sheffer:)
Til baka efst á síðu
Sjá uppsetningu notanda Senda einkapóst
~*Vigdís*~



Skráður þann: 30 Jan 2007
Innlegg: 119
Staðsetning: Grafarhollt - Rvk Aldur: 30ára

InnleggInnlegg: Mán Júl 12, 2010 3:39 pm    Efni innleggs: Svara með tilvísun

Reyndar eru ein og ein blokk þar sem dýrahald er leyfilegt Smile
Vinkona mín býr í slíkri blokk, þá stendur í húsreglum ,,dýrahald leyfilegt"
Húsreglum er ekki hægt að breyta nema með stórum meirihluta á aðalfundi,
svo það þarf svoldið dúll til að breyta þessu ,,tilbaka" Smile

_________________
Spjall um framandi gæludýr
Til baka efst á síðu
Sjá uppsetningu notanda Senda einkapóst Heimsækja heimasíðu sendanda
Víma



Skráður þann: 15 Feb 2010
Innlegg: 10
Staðsetning: Reykjavíkin

InnleggInnlegg: Mið Júl 21, 2010 1:17 am    Efni innleggs: Svara með tilvísun

Þetta er ótrúlegt. Ég er einmitt búin að vera í vandærðum þar sem ÍLS á íbúð í fjölbýlinu mínu og að mér skilst engin leið að fá samþykki frá þeim. Reykjavíkurborg segir bara nei þar sem að um sameiginlega lóð er að ræða þrátt fyrir sérinngang.

En vitið þið hvort að sérinngangur á jarðhæð sem liggur framhjá inngangi/stigahúsi (en ekki um það) telst vera beint út á götu? Ég hef aldrei alveg fattað það hugtak. Ég fer aldrei inn eða um neinar tröppur þegar ég kem heim og get líka sleppt því að fara framhjá stigahúsinu.
Til baka efst á síðu
Sjá uppsetningu notanda Senda einkapóst
Kosmo



Skráður þann: 03 Jan 2009
Innlegg: 118
Staðsetning: Kópavogur

InnleggInnlegg: Fim Júl 22, 2010 10:05 am    Efni innleggs: Svara með tilvísun

Innilega til hamingju með þetta Vigdís og Njála! Smile
Frábært að heyra um skref í rétta átt til aukinna réttinda gæludýraeigenda!

Baráttukveðjur frá Steinunni, Kosmo og Goðheima kisunum Wink
_________________
"I wonder if other dogs think poodles are members of a weird religious cult."
-- Rita Rudner
Til baka efst á síðu
Sjá uppsetningu notanda Senda einkapóst
Stubbyr
Ritstjóri


Skráður þann: 29 Jan 2007
Innlegg: 6851
Staðsetning: Reykjavík

InnleggInnlegg: Fös Júl 23, 2010 1:37 pm    Efni innleggs: Svara með tilvísun

Víma skrifaði:

En vitið þið hvort að sérinngangur á jarðhæð sem liggur framhjá inngangi/stigahúsi (en ekki um það) telst vera beint út á götu?


Mjög líklega ekki ef farið er "framhjá" inngangi þó úti sé Rolling Eyes

Mér sýnist helst að notuð sé "reglustika" til að mæla fyrir um beint út á götu. Svo er spurning hvernig málið leysist upp á Skaga.
_________________
Stubbyr
Til baka efst á síðu
Sjá uppsetningu notanda Senda einkapóst
~*Vigdís*~



Skráður þann: 30 Jan 2007
Innlegg: 119
Staðsetning: Grafarhollt - Rvk Aldur: 30ára

InnleggInnlegg: Fös Ágú 06, 2010 5:31 pm    Efni innleggs: Svara með tilvísun

Awww takk fyrir Steinunn Very Happy

Víma skrifaði:

En vitið þið hvort að sérinngangur á jarðhæð sem liggur framhjá inngangi/stigahúsi (en ekki um það) telst vera beint út á götu?


Spurning um að þú rennir við heima hjá mér til að bera saman,
getur þá notað það á þá að þetta sé ,,eins og" hjá mér og sýnt þeim
dóminn minn, jafnvel myndir af mínum inngang og þínum til samanburðar.
Mér finnst inngangurinn minn vera við hliðinn á stigaganginum, þannig séð,
svo er ég líka við hliðin á hjólageymslunni, sem er stórhættulegt SAMEIGINLEGT húsrými ...

Heimilisfangið er í úrskurðinum og ég var að merkja í hurðargluggann minn
íbúðarnúmerið

_________________
Spjall um framandi gæludýr
Til baka efst á síðu
Sjá uppsetningu notanda Senda einkapóst Heimsækja heimasíðu sendanda
Sýna innlegg frá síðasta:   
Senda inn nýjan spjallþráð   Senda svar á spjallþráð    Hundaspjallið umræðuhópur -> Hundaréttindi Allir tímar eru GMT
Blaðsíða 1 af 1

 
Fara til:  
Þú getur ekki sent inn nýja spjallþræði á þessar umræður
Þú getur ekki svarað spjallþráðum á þessum umræðum
Þú getur ekki breytt innleggi þínu á þessum umræðum
Þú getur ekki eytt innleggjum þínum á þessum umræðum
Þú getur ekki tekið þátt í kosningum á þessum umræðum


Powered by phpBB © 2001, 2005 phpBB Group